Iðnmark ehf.

Iðnmark ehf var stofnað 15. janúar árið 1988 af Dagbjarti Björnsson og konu hans Eyrúnu Sigurjónsdóttir. Poppkornið var fyrsta varan sem kom út á markaðinn og fékk það nafnið Stjörnupopp, ostapoppið kom út á sama tíma og það var algjör nýjung á markaðinum.
1. september sama ár kom út léttpopp, það er stöðug aukning á neyslu poppkorns enda hefur maís mjög gott næringargildi sem inniheldur trefjar sem eru góðar fyrir meltinguna. Strax árið 1991 fórum við að huga að snakk framleiðslu sem við markaðsettum ári síðar.
Við kaupum hráefnið frá Evrópu en aðalgaldurinn er að vera með rétta bragðið og þá eru það kryddið sem skipta máli. Allar umbúðir utan um poppið og snakkið eru framleiddar af Plastprent og Kassagerð Reykjavíkur.



