Iðnmark ehf. var valið í hóp "Framúrskarandi fyrirtækja 2010" hjá Creditinfo
Creditinfo hefur unnið að ítarlegri greiningu sem sýnir hvaða íslensku
fyrirtæki fá bestu einkunn í styrk- og stöðugleikamati félagsins. Af
rúmlega 32.000 fyrirtækjum sem skráð eru í Hlutafélagaskrá reyndust 177
fyrirtæki uppfylla þau skilyrði sem Creditinfo setur til að fá
viðurkenningu sem framúrskarandi fyrirtæki.
Við valið voru síðustu þrír ársreikningar fyrirtækja lagðir til
grundvallar og þurftu þau meðal annars að sýna fram á jákvæðan
rekstrarhagnað og ársniðurstöðu. Sömuleiðis máttu eignir aldrei vera
undir 100 milljónum og eiginfjárhlutfall aldrei minna en 20%. Einnig
þurftu fyrirtækin að vera í flokki 1-3 í CIP áhættumati Creditinfo.
Creditinfo vill með þessari viðurkenningu vekja athygli á fyrirtækjum
sem skara fram úr í viðskiptum og geta verið fyrirmynd annarra
fyrirtækja sem vilja ná góðum árangri.
Vissir þú að Stjörnupopp er trefjaríkt og inniheldur ekki TRANSFITU?
Stjörnupopp. Mat á hollustu
Stjörnupopp var skoðað með hliðsjón af eftirfarandi þáttum:
- Fitu og fitusýrusamsetningar
- Trefja
- Næringargildis
Verkefnið var framkvæmt á eftirfarandi hátt:
Vinnsluaðferðin var skoðuð.
- Hráefni skoðuð. Fengnar upplýsingar um þá olíu sem verið er að nota frá framleiðanda olíunnar. Fengnar upplýsingar um þann maís sem verið er að nota frá framleiðanda maíssins.
- Næringargildi venjulegs popps og ostapopps reiknað út.
- Upplýsingum safnað um nærgingargildi örbylgjupopps og annarra snakk vara sem algengar eru á markaðnum. Þær upplýsingar fengust úr dönskum og Bandarískum upplýsingabönkum á netinu svo og með því að skoða umbúðir nokkurra vara í verslunum.
- Skoðaðar greinar um efnið bæði á netinu og vísindagreinar sem fengust hjá Lýðheilsustöð.
Niðurstöður voru eftirfarandi:
Hráefnin:
Í poppið er notaður óerfðabreyttur maís. Þá er notuð kókosolía sem er óhert jurtaolía og sólblómaolía sem inniheldur enga transfitu. Í ostapopp er svo notaður úðaþurrkaður ekta Cheddar ostur.
Allar upplýsingar um hráefni, þ.á.m. næringargildi var fengið frá framleiðendum,einnig voru gerðar mælingar á vörum. Hægt er að fá þær upplýsingar hjá Iðnmark.Vinnsluaðferð:
Maísinn er poppaður í lofti við um 200°C. Þá er olíu sem búið er að hita í 30°C úðað jafnt yfir poppið ásamt salti. Þegar um ostapopp er að ræða er Cheddar ostinum blandað saman við olíuna og saltið áður en blöndunni er úðað yfir poppkornið. Að lokum er poppinu pakkað í poka sem taka 100 g.
Tafla 1a) Næringargildi í Stjörnupoppi (venjulegt)
Næringargildi í 100 g af poppuðu poppiOrka: Kj
2013
Kkal
481
Prótein (g)
10
Kolvetni (g)
54
Fita (g)
25
þar af mettuð fita
20
Einómettuð fita
3
Fjölómettuð fita
2
Trans fita
<1
Trefjar
10
Natrium (g)
1,0
Tafla 1b) Næringargildi í Stjörnupoppi (ostapoppi)
Næringargildi í 100 g af poppuðu poppiOrka: Kj
2057
Kkal
492
Prótein (g)
12
Kolvetni (g)
50
Fita (g)
27
þar af mettuð fita
22
Einómettuð fita
3
Fjölómettuð fita
2
Trans fita
<1
Trefjar
9
Natrium (g)
1
Tafla 2: Samanburður á stjörnupoppi og örbylgjupoppi
TegundOrka
(kkal)Prótein
(g)Kolvetni
(g)Fita
(g)Mettuð fita (g)
Trans fita (g)
Trefjar
(g)Natríum
(g)Orville (*)
515
6
49
31
7
?
11
1,4
Newmans (**)
567
7
53
37
7
?
10
1
Pop Secret (***)
540
8
53
33
?
?
?
?
Stjörnu (venjulegt)
481
10
54
25
20
<1
10
1
Stjörnu (osta)
492
12
50
27
22
<1
9
1
(*) www.orville.com
(**) umbúðir
(***) umbúðir
Tafla 3: Samanburður á stjörnupoppi og öðru snakki, sérstaklega m.t.t. fitu og sykurs:
Vörur |
Orka |
Fita |
Mettuð fita (g) |
Transfita |
Trefjar |
Sykur |
Súkkulaðikex (1) |
498 |
26 |
13 |
? |
4 g |
28 |
Maarud ostapopp (2) |
525 |
32 |
15 |
? |
1 |
0 |
Doritos Nacos cheese (3) |
476 |
27 |
12 |
? |
4 |
0 |
Pringles original (4) |
556 |
38 |
13 |
? |
3 |
0 |
Jarðhnetur (5) |
576 |
49 |
10 |
? |
8 |
0 |
Suðusúkkulaði (6) |
564 |
33 |
23 |
? |
1 |
50 |
Prins póló (7) |
540 |
32 |
12 |
? |
1 |
35 |
Örbylgjupopp (8) |
541 |
33 |
7 |
? |
12 |
0 |
|
|
|
|
|
|
|
Stjörnupopp (venjulegt) |
481 |
25 |
20 |
<1 |
10 |
0 |
Stjörnupopp (osta) |
492 |
27 |
22 |
<1 |
9 |
0 |
Allar tölur eru miðaðar við 100 g
(1) Íslenskar næringarefnatöflur
(2) Umbúðir
(3) Umbúðir
(4) Umbúðir
(5) Íslenskar næringarefnatöflur
(6) Íslenskar næringarefnatöflur
(7) Íslenskar næringarefnatöflur
(8) Meðaltal þriggja örbylgupoppstegunda
Þess má geta að engar upplýsingar um trans fitur er að finna á umbúðum örbylgjupopps. Hins vegar voru töflur úr TRANSFAIR-verkefninu 1995-96 skoðaðar þar sem er að finna niðurstöður fitusýrugreininga á íslenskum matvælum. Þar kemur fram í flokknum snakk:
Poppkorn, tilbúið (væntanlega Stjörnupopp): 0,1 g trans fitusýrur í 100 g af fitu.
Poppkorn, örbylgju (ekki vitað hvaða tegund): 34,8 g transfitusýrur í 100 g af fitu.
Eins og sjá má í töflu 3 inniheldur Stjörnupopp ívið minni orku í 100 g en 6 af viðmiðunarvörunum. Sama er að segja um magn fitu.
Störnupopp inniheldur tiltölulega hátt hlutfall mettaðrar fitu eða 20 g í 100 g samanborið við 7 g í örbylgjupoppi. Hinsvegar inniheldur Stjörnupopp engar transfitusýrur en gera má ráð fyrir að flestar samanburðarvaranna innihaldi trans fitusýrur (sjá gögn hjá Iðnmark og upplýsingar hér að neðan).
Stjörnupopp inniheldur mikið magn trefja eins og aðrar popptegundir en leyfilegt er að merkja vörur trefjaríkar ef þær innihalda yfir >7 g af trefjum í 100 g. Þess má geta að ráðleggingar Lýðheilsustöðvar miða við 25 g af trefjum á dag. Magn trefja í 1 poka af Stjörnupoppi er því 40% af ráðlögðum dagsskammti.
Að lokum má geta þess að enginn viðbættur sykur er í poppi sem hins vegar er mikið af í kexi, kökum og súkkulaði.
Trans fita:
Transfitusýrur finnast í ýmsum matvælum og má þar nefna kex, kökur, snakk, örbylgjupopp, skyndibitafæði og smjörlíki. Ástæðan er sú að bökunarsmjörlíki og djúpsteikingarfeiti sem er notað við framleiðslu þessara vara inniheldur oft talsvert mikið af transfitusýrum. Rannsóknir sýna að transfitusýrur auka líkur á hjarta- og æðasjúkdómum mun meira en inntaka á mettaðri fitu. Ástæðan er sú að transfita hækkar magn þríglýseríða og LDL (slæma kólesterólið) eins og mettuð fita en einnig lækkar hún HDL (góða kólesterólið) Eins er talið að inntaka á transfitusýrum auki líkur á myndun sykursýki, týpu 2.
Með því að skoða innihaldslýsingu á vöru þá er hægt að gera ráð fyrir að viðkomandi vara innihaldi transfitusýrur ef á umbúðum stendur að hún innihaldi t.d. “að hluta til hert olía” eða “hálfhert olía”. Á ensku þýðir það “Partially hydrogenated oil”. Bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitið, FDA (Food and Drug Administration) hefur sett reglur sem tóku gildi þann 1. janúar 2006, þar sem matvælaframleiðendum verður skylt að merkja magn transfitusýra í næringargildismerkingu matvæla. Ekki ljóst hvenær vænta megi samskonar reglna í Evrópu en Danmörk hefur beitt miklum þrýstingi á Evrópusambandið (ESB) í þessum málum og þá helst með þeim hætti að skylda eigi matvælafyrirtækin til þess að minnka magn transfitusýra í matvælum eða útrýma þeim.
Þann 1. júní á þessu ári gengu í gildi lög í Danmörku um transfitusýrur í matarolíum, viðbiti og smjörlíki. þar er kveðið á um að áður tilgreindar vörur megi ekki innihalda meira en 2g af transfitusýrum í 100g af vöru. Þetta á líka við um smjörlíki sem er notað í kex, kökur og einnig um steikingarfeiti svo dæmi séu tekin.
Ýmis gögn benda til þess að magn transfitusýra í þeim hertu olíum sem verið er að nota í örbylgjupoppi sé um 20 g. Þetta samsvarar því að í örbylgjupoppi sé um 6-7 g af transfitusýrum í 100 grömmum.
Sjá nánar: http://www.ust.is/Matvaeli/Matvaelafrettir/2003/09/29
Mettuð fita:
Mettuð fita finnst í litlu magni í óhertum jurtaolíum. Undantekning eru kókosolía og pálmolía. Vísindalegar rannsóknir benda til að mettuð fita geti hækki blóðfituna verulega. Hins vegar hafa viðurkenndar rannsóknir einnig sýnt að kókosolía og þá sérstaklega jómfrúar olía (virgin coconut oil) geti haft andoxunareiginleika eins og A vítamín, E vítamín, C vítamín, selen, kopar og sínk sem er jákvætt. Því er erfitt að fullyrða um hollustu eða óhollustu kókosolíu enn sem komið er.
Þeir sem aðhyllast náttúrulækningar hafa haldið fram að hrein fita eins og kókosfitan og smjör séu betri kostur en unnar fitutegundir eins og ýmiskonar fituminna viðbit og að hluta til hertar olíur. Vera kann að þeir hafi ýmislegt til síns máls en það breytir ekki því að enn eru engar rannsóknir sem benda til annars en að mettuð fita hækki LDL kólesterol í blóði.
Þess má geta að Lýðheilsustöð mælir með að innan við 10% af heildarorku komi úr mettuðum fitusýrum. Það þýðir að fyrir þann sem borðar 2000 hitaeiningar á dag mega 200 þeirra koma úr mettuðum fitum. Það gera 22 g eða aðeins rúmlega það sem er í einum poka af stjörnupoppi.
Samantekt:
Samkvæmt því sem á undan er komið fram og þeim gögnum sem aflað hefur verið við gerð þessarar skýrslu mæli ég hiklaust með Stjörnupoppi sem góðu snakki/sælgæti. Stjörnupopp er trefjaríkt, enginn sykur er í því, engar transfitusýrur og það inniheldur ívið minni fitu og orku en sambærilegar vörur. Þess ber þó að geta að popp er snakkvara sem á neyta í hófi og sem viðbót við hollt og gott mataræði.
Að lokum má geta þess að bæði börn og unglingar þurfa að auka trefjarnar í fæði sínu um 5-7 g á dag. Með því að borða Stjörnupopp 3x – 4x í viku aukum við trefjarnar um 5-7 g að meðaltali á dag. Í bónus erum við svo að tala um sykurlaust snakk sem ekki inniheldur transfitusýrur.
F.h Rannsóknarþjónustunnar Sýni
Guðrún Adolfsdóttir
matvælafræðingur
Sækja skýrsluna á pdf formati hérna.




